Þann 16., 17 og 18. febrúar síðastliðinn komu til okkar tveir nemendur fráListaháskóla Íslands sem eru þar í námi í skapandi tónlistarmiðlun. Þeir heita Þráinn og Ása en Ása starfaði hér í Rauðaborg á síðastliðnu ári.
Þau hittu börn fædd ´10 sem eru 20 talsins og unnu með þeim tónlistarverkefni sem fólst í því að semja bæði lag og teksta. Í lokin voru svo haldnir tónleikar fyrir börn og starfsfólk leikskólans.
Þetta tókst í alla staði mjög vel og voru allir yfir sig glaðir með ferlið og árangurinn.
Tekstinn var unninn upp úr myndum sem börnin völdu sér:
Bílar að keyra upp á eldfjall
hestarnir eru í röð
þessi lögga er að benda á mig
"afhverju ertu í gulum sundbol"
Ég er að fara að synda
sundlaugarstjarnan
ég sé krakka spila
diskótrommu djamma
amma fer að djamma
Þau sitja kyrr til að taka mynd
ein stelpa hleypur burt
sumir kíkja niður og aðrir upp
sjáðu ég er að leika.
Bolti gulur ýta
stelpa níu ára
Jón Jónsson að syngja
bara 22ja
Chewbacca í starwars.